1.100 fm glæsilegt nýtt skrifstofuhúsnæði með á 6. hæð að Kalkofnsvegi 2 með útsýni til norðurs og suðurs (suðursvalir).
Kalkofnsvegur 2 - 6. hæð
1137 fm
Skv. samkomulagi
Nánari lýsing á rými:
Möguleiki á opnu rúmgóðu rými og salernum í sameign.
Rýminu verðu skila fullinnréttuðu þar sem hönnun innraskipulags tekur tillit til þarfa starfsemi leigutaka.
Möguleiki er á opnu rými sem og að hólfa rýmið í skrifstofur/fundarherbergi.
Sérafnot eru af einu fundarherbergi sem staðsett er utan rýmis. Á jarðhæð rekur húsfélagið glæsileg sameiginleg móttöku með 8 metra lofthæð þar sem móttökuritarar taka á móti gestum.
Í húsinu er rekið aðgangsstýringarkerfi sem tryggir einungis aðgang starfsmanna að húsinu.
Nánar um Kalkofnsveg 2:
Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun. Allt efnisval bygginganna að innan sem utan er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur.
Undir húsunum er einn stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.
Eignasafn Reykjastrætis
Hefur þú áhuga á þessari eign?
Hafðu samband við okkur til þess að fá frekari upplýsingar eða til þess að bóka skoðun.
Sími
+354 571 4990
NETFANG
reykjastraeti@reykjastraeti.is