
Við Dalveg 32C reisir Reykjastræti glæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsnæði þar sem form og ásýnd sækja innblástur í íslenskt landslag. Húsið samanstendur af þremur samtengdum byggingum, tveimur til sex hæðum, hönnuðum af Reflex og Gláma+Kím arkitektum.
Dalvegur 32c
2.700-8.100 fm
2028
Dalvegur 32C býður upp á einstakt tækifæri fyrir stærri fyrirtæki til að móta framtíðarstarfsstöð sína frá grunni. Í fyrsta áfanga er lögð áhersla á útleigu stærri og samfelldra skrifstofurýma, frá einni heilli hæð og upp í allt að um 8.100 fm.
Stærsta einstaka skrifstofuhæðin er um 2.700 fm og hægt er að tengja saman fleiri hæðir eftir þörfum. Sveigjanlegt skipulag gefur fyrirtækjum jafnframt kost á að laga húsnæðið að sinni starfsemi, vinnuumhverfi og framtíðarþörfum.
Á jarðhæð verða um 2.100 fm af verslunar- og þjónusturýmum með góðu aðgengi og áberandi staðsetningu. Dalvegur 32C sést vel frá Reykjanesbraut, þar sem um 70.000 ökutæki fara um á hverjum degi. Staðsetningin hentar því sérstaklega vel fyrirtækjum sem leggja áherslu á gott aðgengi og mikinn sýnileika.
Á efri hæðum verða nútímaleg skrifstofurými með ríkulegri dagsbirtu, góðu útsýni og möguleika á að skapa vandað og nútímalegt starfsumhverfi.
Áætluð afhending er í upphafi árs 2028.
Helstu upplýsingar
- Skrifstofur frá um 2.700 fm
- Allt að um 8.100 fm af skrifstofuhúsnæði
- Möguleiki á einni eða fleiri heilum hæðum
- Um 2.100 fm verslunar- og þjónusturými á jarðhæð
- Sveigjanlegt skipulag og möguleiki á sérsniðnum innréttingum
- Um 70.000 ökutæki fara daglega um Reykjanesbraut
- Góð tenging við helstu stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins
- Áætluð afhending í upphafi árs 2028
Hefur þú áhuga á þessari eign?
Hafðu samband við okkur til þess að fá frekari upplýsingar eða til þess að bóka skoðun.
Sími
+354 571 4990
NETFANG
reykjastraeti@reykjastraeti.is





