Reykjastræti bætir við nýrri eign í Kópavogi

Reykjastræti hefur bætt við sig nýrri eign í Kópavogi, Tónahvarfi 5, sem fellur vel að áherslu félagsins á vönduð atvinnuhúsnæði fyrir nútíma fyrirtæki. Eignin er staðsett á vinsælu atvinnusvæði í Kópavogsbæ, þar sem eftirspurn eftir gæðahúsnæði hefur farið vaxandi undanfarin misseri.
Með kaupunum stækkar eignasafn Reykjastrætis enn frekar, en félagið á nú um 50.000 fermetra af atvinnu- og þróunareignum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Áhersla er lögð á að tryggja að eignir félagsins standist kröfur leigjenda um gæði, hagkvæmni og sveigjanleika í rekstri.
Reykjastræti hyggst halda áfram að leita tækifæra til að styrkja eignasafn sitt á svæðum þar sem eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði er sterk, í samræmi við stefnu félagsins um farsælt og langtíma viðskiptasamband við leigjendur.

