Hafnartorg heldur áfram að styrkja stöðu sína sem lifandi miðbæjarkjarni

Hafnartorg, þróunarsvæði Reykjastrætis við gömlu höfnina í Reykjavík, hefur á undanförnum árum vaxið og dafnað sem einn af líflegustu punktum miðborgarinnar. Svæðið samanstendur af sjö byggingum sem tengjast með göngugötunni Kolagötu og sjálfu Hafnartorgi, en Reykjastræti liggur frá Tryggvagötu, í gegnum svæðið og yfir Geirsgötu að Hörpu.
Á svæðinu er blanda af verslunum, veitingastöðum og skrifstofurými sem hefur laðað að sér bæði íbúa og gesti borgarinnar. Reykjastræti leggur áherslu á að skapa umhverfi sem stenst nútímakröfur um gæði og hönnun, í takt við stefnu félagsins um sjálfbærni og langtímahugsun í rekstri fasteigna.
Félagið mun áfram fjárfesta í uppbyggingu og viðhaldi á Hafnartorgi, með það að markmiði að styrkja enn frekar stöðu svæðisins sem einn helsti áfangastaður miðborgarinnar fyrir verslun, þjónustu og mannlíf.

